Fara í efni

Viðburðir í jóladagskrá Skagafjarðar

17.11.2017
Mynd: pixabay.com

Sveitarfélagið Skagafjörður mun birta jóla- og áramótadagskrá í Sjónhorninu í desember líkt og síðustu ár. Þar verða viðburðir á aðventu, jólum og um áramót kynntir.

Þeir sem hafa áhuga á að koma viðburðum á framfæri í jóladagskrána eða hafa áhuga á að standa fyrir einhverju skemmtilegu í tengslum við tendrun ljósa á jólatrénu eru beðnir um að hafa samband við Bryndísi Lilju Hallsdóttur, með því að senda póst á bryndisl@skagafjordur.is eða hringja í síma 455-6017, fyrir mánudaginn 20. nóvember nk.

Tendrun ljósa á jólatré

Ljósin verða tendruð á jólatré við Kirkjutorg á Sauðárkróki laugardaginn 2. desember kl. 15:30.