Fara í efni

Viðburðir í jóladagatal

06.11.2014

Líkt og undanfarin ár gefur vinabær Skagafjarðar í Noregi, Kongsberg, íbúum Skagafjarðar jólatré sem verður staðsett á Kirkjutorginu á Sauðárkróki. Ljósin á trénu verða tendruð laugardaginn 29. nóvember nk. kl. 15:30 við hátíðlega athöfn.

Sveitarfélagið Skagafjörður mun birta jóla- og áramótadagskrá í desember líkt og síðustu ár þar sem viðburðir á aðventu, jólum og um áramót verða kynntir. Þeir sem hafa áhuga á að koma viðburðum á framfæri í jóladagskrána eða hafa áhuga á að standa fyrir einhverju skemmtilegu í tengslum við tendrun ljósa á jólatrénu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband Laufeyju Kristínu Skúladóttur eða Sigfús Inga Sigfússon, fyrir miðvikudaginn 12. nóvember nk.

Netföng þeirra eru:

laufey@skagafjordur.is

sigfus@skagafjordur.is