Fara í efni

Vetrarhátíð Tindastóls um helgina

23.02.2018
Mynd: Skíðasvæðið í Tindastóli

Vetrarhátíð Tindastóls verður haldin á morgun, laugardaginn 24. febrúar. Skíðasvæðið opnar kl. 11:00 og það verður líf og fjör í fjallinu fram eftir degi. Dagskráin er fjölbreytt og fjölskylduvæn. 

Kl. 11:00 Skíðasvæði opnar - Göngubrautin er opin og púkabraut er opin fyrir alla.

Kl. 11:30 Leikstjórar safna saman liði sínu.

Kl. 13:00 Crazy Roller

Kl. 15:15 Varðeldur þar sem nýja lyftan byrjar. Fjallakofinn verður með prufu og kynningu á svigskíðum, fjallaskíðum og gönguskíðum.

Kl. 16:00 Gengið á Tindastól á fjallaskíðum. Farið yfir helstu atriði búnaðar þegar gengið er á fjallaskíðum. Allir áhugasamir velkomnir. 

 

Nánar er hægt að fylgjast með dagskránni á Facebook síðu skíðasvæðisins eða á heimasíðunni.

Skíðasvæðið í Tindastóli er afar fjölskylduvænt skíðasvæði í fjallaparadísinni Tindastóli í Skagafirði. Fjallið býður upp á mikla möguleika, bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Allir geta því fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem um er að ræða svigskíði, snjóbretti eða gönguskíði. Hægt er að leigja allan skíða- og brettabúnað í fjallinu.