Fara í efni

Verndarsvæði í byggð - Skógargata 1

21.05.2025

Hjá byggingarfulltrúa Skagafjarðar liggur fyrir byggingarleyfisumsókn, frá eiganda fjöleignahúss við Skógargötu 1 á Sauðárkróki, um leyfi til að gera breytingar á áður samþykktum aðaluppdráttum. Umbeðnar breytingar varða útlit hússins, kvistar teknir af, útliti vesturhliðar lítillega breytt og afstöðumynd uppfærð til samræmis við samþykkt deiliskipulag.  Áætlaður verktími er 18 mánuðir. Framkvæmdin er innan verndarsvæðis í byggð sem er norðurhluti gamla bæjarins á Sauðárkróki.

Samkvæmt greinargerð um verndarsvæði í byggð frá 2018 og Húsakönnun Sauðárkróks frá 2018 hefur húsið miðlungs varðveislugildi sem byggir að mestu á upprunalegu gildi og samsvörun við nærliggjandi byggingar. Aftur á móti er gildi þess metið lágt fyrir byggingarlist, menningarsögulegt gildi, umhverfisgildi og tæknilegt ástand.
Með vísan í 6. gr laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015 ber sveitarstjórn að auglýsa fyrirhugaða framkvæmd áður en ákvörðun er tekin um leyfi til framkvæmda. Þannig fær almenningur og hagsmunaaðilar tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og athugasemdum á framfæri við sveitarstjórn áður en veitt er framkvæmdaleyfi.

Gögn um fyrirhugaða framkvæmd liggja frammi til kynningar í ráðhúsi sveitarfélagsins og hér á heimasíðunni til og með 4. júní 2025.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi 4. júni 2025 til byggingarfulltrúa í ráðhús, Skagfirðingabraut 21 eða á netfangið andrig@skagafjordur.is.