Fara í efni

Verndarsvæði í byggð - gamli bærinn á Króknum

22.11.2017
Góð mæting var á fundinn um verndarsvæði í byggð í Húsi frítímans

Íbúafundur var haldinn í fundarsal sveitarfélagsins í Húsi frítímans í gær, 21. nóvember, um verkefnið verndarsvæði í byggð þar sem kynnt var tillaga að verndun gamla bæjarins á Sauðárkróki.

 Viggó Jónsson formaður Skipulags- og byggingarnefndar setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri stýrði fundi.

 Guðmundur St. Sigurðarson minjavörður Nl. vestra, fulltrúi Minjastofnunar, flutti fróðlegt erindi um verkefnið Verndasvæði í byggð á landsvísu. Hann gerði grein fyrir þeim lagaramma sem verkefnið byggir á og skýrði helstu markmið þess.

 Sólveig Olga Sigurðardóttir starfsmaður verkefnisins gerði grein fyrir stöðu þess í heimabyggð. Sú vinna hefur, enn sem komið er, mest verið heimildaöflun, minjaskráning og rýni í kort og myndir. Markmiðið er að á vordögum næsta árs liggi fyrir mótuð verndartilllaga fyrir nyrðri hluta „gamla bæjarins“.

 Fundurinn var vel sóttur og voru málefnalegar fyrirspurnir og umræður að loknum framsöguerindum. Áhugasamir   íbúar sem gætu gefið upplýsingar eða vilja kynna sér verkefnið betur eru hvattir til að hafa samband við starfsmenn verkefnisins á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga.  Einn af áherslupunktum verkefnisins er samráð við íbúana.