Fara í efni

Verkefnastjóri í liðveislu við fatlað fólk 50% starf

28.07.2014

Fjölskyldusvið óskar eftir að ráða faglærðan verkefnastjóra í liðveislu við fatlað fólk í sjálfstæðri búsetu.

Verkefnisstjóri vinnur við greiningu á þjónustuþörf, gerð einstaklingsmiðaðra þjónustuáætlana, eftirfylgni þeirra og ráðgjöf við einstaklinga, fjölskyldur og samstarfsaðila, sem og aðstoð við athafnir dagles lífs, ekki síst á heimilum fólks og í daglegu umhverfi þess.

Við leitum að starfsmanni með háskólamenntun, s.s. þroskaþjálfun, iðjuþjálfun, félagsráðgjöf eða annarri menntun sem ætla má með hliðsjón af fagþekkingu, siðareglum og faglegum viðhorfum að nýtist í starfinu.

Starfsmaðurinn þarf að hafa góða vitund fyrir sjálfum sér og hvernig hann geti nýtt hæfileika sína sem best í þágu þjónustuþega, ríka ábyrgðartilfinningu, virðingu í mannlegum samskiptum og skilning á mannlegum þörfum, vera opinn og jákvæður í viðmóti, tilbúinn að tileinka sér nýjar hugmyndir og hafa metnað í starfi.

Upplýsingar gefur Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, steinunnr@skagfjordur.is í síma 4556000.

Umsóknarfrestur er framlengdur 6. ágúst 2014. Skila skal rafrænum umsóknum í íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins eða senda í pósti á Ráðhús Skagafjarðar, 550 Sauðárkrókur