Fara í efni

Verðlaunahafar í NKG í skoðunarferð í Vestmannaeyjum

12.10.2015
Nemendur 6. bekkjar Varmahlíðarskóla sem komust í úrslit NKG í vor

Síðastliðið vor tóku fjórir nemendur 6. bekkjar Varmahlíðarskóla þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Þeir Jón Hjálmar og Svend Emil unnu bronsverðlaun í sínum flokki en þeir hönnuðu plastþjöppu sem sett er aftan á dráttarvél og í henni er rúlluplast þjappað saman. Á heimasíðu Varmahlíðarskóla segir að glæsileg verðlaun hafi verið í boði s.s. Sony ActionCam frá Nýherja, Gjafabréf í FabLab, ferðalag til Vestmannaeyja í boði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Gjafabréf í Háskóla unga fólksins vorið 2016 í boði HÍ og Gjafabréf í IKEA að verðmæti 20.000 kr. Í síðustu viku fóru þeir svo Jón Hjálmar og Svend Emil í tveggja daga ferð til Vestmannaeyja til að skoða Fablab smiðjuna þar.