Fara í efni

Verðlaunaafhending við útskrift Tónlistarskólans

27.05.2014
Mynd Tónlistarskóli Skagafjarðar

Við skólaslit Tónlistarskóla Skagafjarðar í síðustu viku voru veitt verðlaun úr minningarsjóðum til þriggja nemenda skólans. Matthildur Kemp Guðnadóttir fiðlunemandi í framhaldsnámi fékk verðlaun úr minningarsjóði Jóns Björnssonar tónskálds frá Hafsteinsstöðum fyrir góðan námsárangur.  Eiður Guðvinsson stofnandi sjóðsins veitti henni verðlaunin. Einnig voru veitt verðlaun fyrir góðan námsárangur úr minningarsjóði Aðalheiðar Erlu Gunnarsdóttur frá Syðra-Vallholti en þau hlutu Vala Rún Stefánsdóttir píanónemandi í miðnámi og Linda Róbertsdóttir kontrabassanemandi í miðnámi.