Vel heppnuð Atvinnulífssýning Skagafjarðar
Atvinnulífssýning Skagafjarðar fór fram núna um helgina, dagana 19.–20. september, í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Um þúsundir manns sóttu sýninguna heim í ár og ríkti góð stemning meðal bæði gesta og sýnenda.
Að þessu sinni voru 42 fyrirtæki sem tóku þátt í sýningunni, sem er metfjöldi sýnenda til þessa.
Dagskráin á sviði var fjölbreytt alla helgina og boðið var upp á erindi og pallborð sem tengdust atvinnulífinu í Skagafirði. Tónlistaratriðin voru flutt af tónlistarfólki úr Skagafirði og Lína Langsokkur kíkti í heimsókn ásamt Blaðraranum, sem gaf börnum blöðrudýr. Þá var virkilega gaman að fá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í heimsókn, en hún flutti erindi um framtíð atvinnulífs á landsbyggðinni.
Sveitarfélagið þakkar íbúum og gestum kærlega fyrir innlitið um helgina og þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við að gera sýninguna frábæra.