Fara í efni

Vel heppnaður viðburður – Tölum saman !

12.02.2026

Fyrirlestur um félagslega einangrun var haldinn 30. janúar sl. í Húsi frítímans á Sauðárkróki í boði fjölskyldusviðs Skagafjarðar í samvinnu við Félag eldri borgara í Skagafirði. Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur og Svavar Knútur Kristinsson tónlistarmaður fræddu þátttakendur um félagslega einangrun, einkenni hennar, áhættuþætti, skaðsemi auk mögulegra forvarna og verkefni sem hægt er að fara í til að vinna gegn henni.

Fundurinn var fjölsóttur og skemmtilegur þrátt fyrir að um alvarlegt umræðuefni sé að ræða. Hjónin Líney og Svavar Knútur fóru afar vel með fyrirlesturinn sem er hluti af vitundarvakningu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins , Tölum saman. Við getum öll hjálpað, höldum sambandi og mætum okkar samborgurum með vinskap, hlýju og virðingu.

Sveitarfélagið þakkar öllum þeim sem mættu til að hlýða á erindið.

Hvað eru einmanaleiki og félagsleg einangrun?

Einmanaleiki er huglæg, óvelkomin tilfinning sem við finnum fyrir þegar við upplifum skort á félagslegum samskiptum. Fólk er í eðli sínu félagsverur og því er nauðsynlegt að eiga í félagslegum samskiptum við annað fólk. Einmanaleiki er tilfinning sem getur komið og farið.

Félagsleg einangrun er hins vegar lítil eða engin félagsleg tengsl. Félagsleg einangrun er ekki það sama og félagsleg nægjusemi. Nær allar mannverur hafa þörf fyrir tengsl og einhvers konar nánd. Það að vera „út af fyrir sig“ og að einangrast félagslega er ekki það sama.

Félagsleg einangrun hefur aukist hjá öllum aldurshópum um allan heim. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) skilgreinir hana sem lýðheilsuvanda til jafns við reykingar, ofneyslu áfengis, offitu og fleiri stórfelldar ógnir við almenna heilsu. Félagsleg einangrun er líka mun algengari en fólk grunar.

Hægt er að kynna sér málið betur hér á island.is.