Vel heppnaður samráðsfundur vegna framtíðarsýnar Gamla bæjarins á Sauðárkróki
Samráðsfundur um deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki fór fram í Árskóla í gær. Ánægjulegt var að sjá hversu margir mættu á fundinn, en um og yfir 100 íbúar komu saman og tóku þátt í umræðunni. Almenn ánægja var á meðal þátttakenda með að samráð hafi verið strax á fyrstu stigum skipulagsvinnunnar, en mikil áhersla var lögð á frá upphafi verkefnisins að íbúar fengju tækifæri til að hafa áhrif á framtíðarsýn og þróun svæðisins.
Á fundinum kynntu Páll Jakob Líndal, dr. í umhverfissálfræði, og Hannes Vilhjálmsson verkefnið og fóru yfir fyrirkomulag vinnunnar. Þeir fóru yfir markmið skipulagsvinnunnar, helstu frumforsendur og sérstöðu svæðisins. Jafnframt sýndu þeir þrívíddargagnagrunn sem nýttur verður við gerð deiliskipulagsins til að sýna þróun deiliskipulags og mögulegar útfærslur á vinnslutíma.
Að kynningu lokinni fengu fundargestir spurningalista sem ætlað var að kalla fram hugmyndir og skoðun þeirra á svæðinu. Niðurstöðurnar verða nýttar sem mikilvægt innlegg í áframhaldandi vinnu við mótun deiliskipulagsins.
Sveitarfélagið þakkar öllum sem komu og tóku þátt í umræðunni.