Vel heppnaður fræðsludagur
Miðvikudaginn 19. ágúst kom starfsfólk leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í Skagafirði saman á árlegum fræðsludegi sem haldinn var í Miðgarði. Að þessu sinni var um sérstakan áfanga að ræða, þar sem fræðsludagurinn var haldinn í 15. sinn. Markmið dagsins var að efla fagþekkingu, styrkja samstarf og skapa góðan grunn fyrir komandi skólaár. Dagskráin var fjölbreytt og tók á mikilvægum málefnum sem tengjast velferð, námi og starfsþróun.
Deginum var formlega hleypt af stokkunum með setningu frá Bryndísi Lilju Hallsdóttur, sviðsstjóra fjölskyldusviðs, og ávarpi Magnúsar Barðdal sveitarstjóra. Fundarstjóri dagsins var Álfhildur Leifsdóttir, leiðtogi fræðslumála.
Í fyrirlestrum morgunsins var meðal annars fjallað um innleiðingu verkefnisins Heillaspor, sem er heildræn og tengslamiðuð nálgun til að styðja við inngildandi skóla- og frístundastarf. Aðalheiður Sigurðardóttir, tengslaráðgjafi hjá Skagafirði, heldur utan um innleiðingu Heillaspora hjá Skagafirði auk annarra starfsmanna á fjölskyldusviði. Einnig flutti sálfræðingurinn Hugrún Vignisdóttir erindið „Er brunabjallan biluð?“ þar sem sjónum var beint að kvíðaviðbrögðum barna og hvernig fullorðnir geta stutt þau í gegnum áskoranir. Þá kynnti Sigþrúður Guðmundsdóttir forvarnaráætlunina FOR-NOR, sem er ætlað að efla og samræma forvarnastarf á Norðurlandi vestra.
Eftir hádegi tóku þátttakendur þátt í vinnustofum þar sem boðið var upp á fjölbreytt efni, meðal annars um bekkjarstjórnun, útikennslu, verkfæri til kortlagningar og lausnamiðuð samtöl, sjálfseflingu og vettvangsferð í nýtt húsnæði leikskólans Birkilundar. Með vinnustofunum fengu þátttakendur tækifæri til að dýpka þekkingu sína og kynnast nýjum hugmyndum og verkfærum sem nýtast í daglegu starfi með börnum og ungmennum.
Fræðsludagurinn endaði á sameiginlegri hreyfi- og gleðistund, Fjörefli með KVAN, áður en allir héldu heim á leið. Dagurinn var vel sóttur og einkenndist af góðum samtölum, fræðslu og jákvæðum anda sem þátttakendur taka með sér inn í nýtt skólaár.
Fjölskyldusvið Skagafjarðar þakkar öllum fyrirlesurum, skipuleggjendum vinnustofa og þátttakendum fyrir þeirra framlag og óskar starfsfólki skólanna farsældar og ánægjulegs skólaárs.