Fara í efni

Veitu- og framkvæmdasvið auglýsir laust til umsóknar 100% starf hjá Eignasjóði

07.12.2016

Veitu- og framkvæmdasvið auglýsir laust til umsóknar 100% starf hjá Eignasjóði

Veitu og framkvæmdasvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann við Eignasjóð. Starfshlutfallið er 100% og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:

  • Viðhald gatna og gangstétta.
  • Viðhald og viðgerðir á fasteignum í eigu sveitarfélagsins.
  • Viðhald fráveitukerfa.
  • Rekstur og viðhald umferðarmerkinga.
  • Vetrarþjónusta gatna.
  • Þjónusta við stofnanir sveitarfélagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Iðnmenntun er kostur.
  • Meirapróf og/eða vinnuvélapróf er kostur.
  • Reynsla af verklegum framkvæmdum og/eða viðhaldi og viðgerðum skilyrði.
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
  • Góðir samskiptahæfileikar.
  • Frumkvæði og drifkraftur.

Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Laun og önnur starfskjör fara eftir samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 21. desember 2016

Nánari upplýsingar um starfið gefur Indriði Þór Einarsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, í síma 455-6200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið: indridi@skagafjordur.is.

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.