Fara í efni

Veiðileyfi í Laxá í Laxárdal - Uppfært

15.06.2022
Laxá í Laxárdal - mynd agn.is

Veiðileyfi í eigu sveitarfélagsins í Laxá í Laxárdal í fyrrum Skefilsstaðahreppi eru til sölu. Um er að ræða tvo daga 3. ágúst og 14. ágúst. Veiðisvæðin eru tvö. Svæði 1 er frá ósi árinnar við Sævarland að brúnni við Skíðastaði og svæði 2 frá brúnni að Háafossi.

Leyfð er ein stöng á hvoru svæði í ánni og er daglegur veiðitími frá kl 7 - 13 og 16 - 22.

Einungis er leyfð fluguveiði á flugustöng og eru fimm laxar hámarksveiði. Halda má einum hæng undir 70 cm á stangardag, annars skal sleppa öllum laxi aftur í ána og leyfa særðum fiskum að njóta vafans. Veiðimanni ber að hætta veiði í ánni þegar hámarksveiði laxa er náð. Leyfilegt er að halda öllum silungi.

Verðið fyrir daginn er 35.000 kr og geta áhugasamir haft samband við skagafjordur@skagafjordur.is

Fyrstur kemur fyrstur fær.

Dagarnir eru seldir!