Fara í efni

Vegna umfjöllunar um ætlaðan fjárdrátt

09.05.2014

Vegna umfjöllunar um ætlaðan fjárdrátt fyrrverandi starfsmanns Sveitarfélagsins Skagafjarðar vill sveitarfélagið koma eftirfarandi á framfæri.  Í tengslum við ársuppgjör 2013 vöknuðu grunsemdir um fjárdrátt og í framhaldi af því var haft samband við embætti Sérstaks saksóknara og málið kært.  Sveitarfélagið mun ekki tjá sig frekar um málið á meðan rannsókn stendur yfir.