Fara í efni

Vegleg gjöf gefin til allra leikskóla í Skagafirði

21.08.2019
Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri og Inga Huld Þórðardóttir talmeinafræðingur með gjöfina góðu

Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur færði fræðslusviði Sveitarfélagsins Skagafjarðar veglega gjöf til allra leikskóla í Skagafirði á dögunum.

Bryndís hefur starfað á Íslandi í rúmlega 30 ár sem talmeinafræðingur og hefur m.a. gefið út námsefni undir heitinu, Lærum og leikum með hljóðin, sem ætlað er öllum barnafjölskyldum og skólum. Námsefnið byggir á fagþekkingu talmeinafræðinnar, rannsóknum og reynslu hennar af því að vinna með börnum, foreldrum og fagfólki skóla. Efnið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar. 

Í tilefni af þessum tímamótum í starfi ákvað Bryndís að gefa efnið til allra leikskóla á Íslandi. Með stuðningi nokkurra fyrirtækja auk eigin framlags fá allir leikskólar á landinu heildstætt efni úr Lærum og leikum með hljóðin (L&L) að gjöf til að nýta í starfi sínu með leikskólabörnum. Aukaefni eins og púsl, límmiðar og vinnusvuntur, sem styðja við hljóðanámið með fallegum stafamyndum, fylgir með skólapökkunum. Námsefninu fylgja smáforrit sem er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Hér er hægt að skoða smáforritin.

Sveitarfélagið Skagafjörður þakkar Bryndísi kærlega fyrir þessa mikilvægu gjöf.