Fara í efni

Varmahlíðarskóli óskar eftir að ráða kennara

08.07.2015

 

Varmahlíðarskóli óskar eftir að ráða í eftirtaldar kennarastöður:

 

Vélsmíðakennari:
Um er að ræða 30% starfshlutfall frá 1. ágúst 2015 - 31. júlí 2016.

Textílkennari:
Um er að ræða 40% starfshlutfall frá 1. ágúst 2015 - 31. júlí 2016.

Smíðakennari:
Um er að ræða 15% starfshlutfall frá 1. ágúst 2015 - 31. júlí 2016.

Umsjónarkennari í 5. bekk
Um er að ræða 80% starfshlutfall frá 1. ágúst 2015 - 31. júlí 2016.
Kennslugreinar eru m.a. íslenska, stærðfræði, samfélagsfræðigreinar og náttúrufræði.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Faglegur metnaður.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.

Störfin henta konum jafnt sem körlum. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna FG.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2015

Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristvina Gísladóttir, skólastjóri, í síma 864-3993 eða með því að senda fyrirspurn á kristvina@varmahlidarskoli.is.

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.