Fara í efni

Varmahlíðarskóli í úrslitum í Skólahreysti í kvöld

02.05.2018
Lið Varmahlíðarskóla

Úrslitakeppnin í Skólahreysti þetta árið verður í Laugardagshöll í kvöld og hefst keppnin kl 20. Keppninni verður sjónvarpað beint á RÚV.

Það var flottur hópur sem lagði af stað í býtið í morgun frá Varmahlíð, keppendur, liðstjórar og stuðningsmenn. Bleikur verður litur Varmahlíðarskóla í kvöld svo það er um að gera að setjast fyrir framan skjáinn og fylgjast með bleika liðinu.