Fara í efni

Varmahlíðarskóli auglýsir eftir kennurum

16.05.2014

Varmahlíðarskóli  óskar eftir að ráða í eftirtaldar kennarastöður:

Smíðakennari:

  • Um er að ræða 60% starfshlutfall, frá og með 1. ágúst 2014.

 Íþróttakennari:

  • Um er að ræða 100% starfshlutfall, frá 15. ágúst til 1. desember 2014.
  • Ráðningarform: Tímabundin ráðning, vegna fæðingarorlofs.

 Umsjónarkennari í 9. bekk:

  • Um er að ræða 80% starfshlutfall, frá 1. ágúst til 15. júní.
  • Ráðningarform: Tímabundin ráðning, vegna fæðingarorlofs.
  • Kennslugreinar: m.a. samfélagsfræði og íslenska.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Faglegur metnaður.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og launanefndar sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 1. júní 2014.

Sótt er um störfin á heimasíðu Sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Á. Freyja Friðbjarnardóttir, skólastjóri í síma 455-6023 eða með því að senda fyrirspurn á freyja@varmahlidarskoli.is

Sækja um.