Fara í efni

Úttekt á rekstri, stjórnsýslu og fjármálum sveitarfélagsins Skagafjarðar

12.12.2023

Haraldur Líndal Haraldsson kynnti á starfsmannafundi í dag niðurstöður úttektar á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum sveitarfélagsins Skagafjarðar og tillögur sem miða að því að bæta framangreinda þætti, þjónustu og starfsumhverfi starfsmanna sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn Skagafjarðar mun í byrjun nýs árs taka tillögunar til frekari umræðu og skoðunar.

Fjölmennt var á fundinum og fylgdust margir með í streymi. Hér fyrir neðan má nálgast skýrsluna ásamt upptöku frá starfsmannafundinum.

Smelltu hér til að lesa skýrslu Haraldar.

Smelltu hér til að horfa á upptöku frá starfsmannafundinum.