Fara í efni

Útsvar á Rúv á föstudaginn

16.03.2015
Lið Skagafjarðar í Útsvari

Lið Skagafjarðar stóð sig með miklum sóma í annari umferð spurningaþáttarins Útsvars í Sjónvarpinu á dögunum. Í 16-liða úrslitum lagði lið Skagfirðinga, sem skipað er þeim Guðnýju Zöega, Guðrúnu Rögnvaldardóttur og Vilhjálmi Egilssyni, vaska keppendur Rangárþings ytra að velli í æsispennandi viðureign.

Núna á föstudaginn er svo komið að 8-liða úrslitum og þar mæta Skagfirðingar harðsnúnu liði Akureyrar. Verður án efa um spennandi og skemmtilega keppni að ræða.