Fara í efni

Útskriftir úr leikskólunum

21.05.2014

Útskriftir 6 ára barna standa yfir þessa dagana hjá leikskólunum í Skagafirði. Á heimasíðu Ársala segir að útskrifað verði föstudaginn 23. maí kl 14. Leikskólinn Tröllaborg er á þremur stöðum og var útskrift á Hofsósi þann 20. maí, verður í Fljótunum 22. og á Hólum föstudaginn 23. maí.  Á myndinni má sjá börnin á Hofsósi en þau fengu birkihríslu frá leikskólanum í útskriftargjöf. Að útskrift lokinni var boðið upp á vöfflur og opnuð myndlistarsýning sem stendur út vikuna. Útskrift fór fram fyrr í maí í leikskólanum Birkilundi í Varmahlíð en þar sýndu börnin leikritið Ávaxtakörfuna af því tilefni. Síðan fengu þau afhent útskriftarskjöl og rós og bornar fram veitingar.