Fara í efni

Útboð: Staðarbjargavík Hofsósi- Tröppur og pallar

27.02.2026

Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Staðarbjargavík Hofsósi – Tröppur og pallar.

Verkið felst í uppbyggingu útsýnissvæðis við Staðarbjargavík. Um er að ræða jarðvinnu, smíði stoðveggja úr steypu, smíði handriða, útsýnispalla, bekkja og stiga úr völsuðu galvanhúðuðu stáli ásamt göngustígagerð.

Helstu magntölur:

  • Stálbitar: þ.b. 123 m
  • Handlistar: þ.b. 328 m
  • Handriðsstólpar: þ.b. 205 stk.
  • Steypa: þ.b. 44 m3
  • Steypumót: þ.b. 121 m2

Kynningarfundur og vettvangsskoðun verður haldin að Suðurbraut 18, Hofsósi, mánudaginn 9. mars 2026, kl. 13.00.

Opnunardagur tilboða er 1. apríl 2026, kl. 13.00, hjá Stoð verkfræðistofu, Aðalgötu 21, Sauðárkróki.

Verkinu í heild skal lokið 31. ágúst 2026.

Útboðsgögn verða afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með 2. mars 2026. Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið stod@stodehf.is