Fara í efni

Útboð - Skólamáltíðir fyrir sveitarfélagið Skagafjörð

25.04.2023

Consensa fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir tilboðum í skólamáltíðir fyrir grunn- og leikskóla á Sauðárkróki. Um er að ræða útboð sem skipt er í tvo samningshluta og tekur til framleiðslu og afhendingu á skólamáltíðum fyrir nemendur og starfsmenn skólanna.

Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is og í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvefnum á vefslóðinni:
https://tendsign.is/doc.aspx?UniqueId=afhjhtthun&GoTo=Tender

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en kl. 12:00 þann 23. maí 2023.

Hafa skal í huga að tilboðfrestir geta tekið breytingum og eru allar slíkar breytingar eingöngu tilkynntar inn á útboðsvefnum og gildir sá tími sem þar er tiltekinn.