Fara í efni

Útboð - Skólamáltíðir

05.04.2024

Consensa fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir tilboðum í skólamáltíðir fyrir grunn- og leikskóla á Sauðárkróki. Um er að ræða útboð sem skipt er í tvo samningshluta og tekur til framleiðslu og afhendingu á skólamáltíðum fyrir nemendur og starfsmenn skólanna.

Hægt er að sækja öll  útboðsgögn án greiðslu á útboðsvefnum www.tendsign.is.

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en kl. 12:00 þann 3. maí 2024.

Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is/utbod/auglyst-utbod.