Fara í efni

Útboð: Hreinsun rotþróa á Norðurlandi vestra

13.03.2026

Consensa fyrir hönd sveitarfélaganna Skagafjarðar, Húnaþings vestra og Húnabyggðar óskar eftir tilboðum í hreinsun rotþróa samkvæmt skilmálum útboðslýsingar. Um er að ræða hreinsun á rotþróm sem staðsettar eru við lögbýli, íbúðarhús, frístundarhús og stofnanir innan sveitarfélagsmarka framangreindra sveitarfélaga ásamt meðhöndlun seyru.

Hægt er að sækja öll útboðsgögn án endurgjalds á www.tendsign.is

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti í útboðkerfinu Tendsign eigi síðar en kl. 12:00 þann 13. apríl 2026.

Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is/utbod