Upplýsingar vegna sveitarstjórnarkosninga 2026
Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí nk. og er athygli vakin á eftirfarandi dagsetningum:
- Skilafrestur framboða er til kl. 12:00 - 10. apríl 2026.
- Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 17. apríl 2026.
- Kjördagurinn er sem fyrr segir 16. maí.
Yfirkjörstjórn Skagafjarðar hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is, sjá nánar hér: Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is
Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.
Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu. Hér er sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.
Hægt er að mæla með framboðum hér: Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is
Kjörstaðirnir í Skagafirði verða eftirfarandi:
- Bóknámshús FNV á Sauðárkróki
- Varmahlíðarskóli
- Grunnskólinn austan Vatna á Hofsósi
Ef spurningar vakna skal hafa samband á netfangið skagafjordur@skagafjordur.is.