Upplýsingar um systkinaafslátt í leikskólum, frístund og daggæslu í heimahúsum
Skagafjörður bendir foreldrum/forráðamönnum, sem eiga fleiri en eitt barn á leikskólaaldri og/eða barn á grunnskólaaldri sem sækir frístund eftir skóla, á verklagsreglur vegna afsláttar á dvalargjöldum í leikskólum, frístund og daggæslu í heimahúsum í Skagafirði.
Systkinaafsláttur
Systkini sem eru í mismunandi úrræðum á vegum sveitarfélagsins njóta systkinaafsláttar. Afslátturinn reiknast þannig að fyrir yngsta barnið er greitt fullt gjald skv. reglum viðkomandi úrræðis (þ.e. leikskóladvöl, skólafrístund eða daggæslu í heimahúsum), fyrir næst yngsta barnið er greitt 50% af gjaldskrá en ekkert er greitt fyrir þriðja barnið og þar umfram.
Foreldrar/forráðamenn sem óska eftir systkinaafslætti skulu sækja um hann í gegnum Íbúagátt á heimasíðu Skagafjarðar. Niðurgreiðslurnar taka þá gildi næsta mánuð eftir að umsókn er afgreidd. Umsóknir um systkinaafslátt eru ekki afturvirkar og endurnýja þarf umsókn þegar barn færist á milli skólastiga/úrræða.
Systkinaafsláttur reiknast einungis af dvalargjöldum, ekki fæðisgjöldum.
Viðbótarniðurgreiðslur
Hægt er að sækja um viðbótarniðurgreiðslur á grundvelli tekna og er þá miðað við heildartekjur s.l. þriggja mánaða í samræmi við tekjuviðmið sem Skagafjörður setur, sjá tekjuviðmið vegna viðbótarniðurgreiðslna. Tekjuviðmið skiptast í tvö þrep og er viðbótarniðurgreiðslan 40% af almennu gjaldi ef viðkomandi er í tekjuþrepi 1 en 20% af almennu gjaldi ef viðkomandi er í tekjuþrepi 2. Niðurgreiðsla er ekki veitt af fæði.
Foreldrar/forráðamenn sem óska eftir niðurgreiðslum skulu sækja um þær í gegnum Íbúagátt Skagafjarðar fyrir 20. hvers mánaðar og skulu umbeðin gögn fylgja umsókn áður en hún er tekin til efnislegrar afgreiðslu. Niðurgreiðslurnar taka þá gildi næsta mánuð eftir að umsókn er afgreidd og gilda út skólaárið eða til 1. september ár hvert. Umsóknir um viðbótarniðurgreiðslur eru ekki afturvirkar og endurnýja þarf þær árlega.
Hér má finna reglurnar í heild sinni.