Upplýsingar um Laufskálarétt
26.09.2023
Fréttir
Laufskálarétt í Hjaltadal verður haldin laugardaginn 30. september nk. og hefst kl 13:00.
Öllum er heimilt að taka þátt í stóðrekstrinum en knöpum er bent á að leggja af stað frá áningarhólfi hestamanna við Sleitustaði og frá Laufskálarétt ekki seinna en kl 10:00. Rekstrarstörf hefjast ca. kl 11:30 frá afréttarhliðinu við Unastaði í Kolbeinsdal.
Stóðrekstrarstjóri er Ólafur Sigurgeirsson á Kálfsstöðum og Bergur Gunnarsson á Narfastöðum hefur yfirumsjón með réttarstörfum.
Fjallskilanefnd