Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2021
09.10.2020
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2021:
- Atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir
- Verkefnastyrkir á menningarsviði
- Stofn- og rekstrarstyrkir á menningarsviði
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 16. nóv. nk.
Á heimasíðu SSNV http://www.ssnv.is/is/uppbyggingarsjodur er að finna úthlutunarreglur, matsblað og ýmsar leiðbeiningar við gerð umsókna.
Góð umsókn eykur möguleika umsækjenda á að fá styrk úr sjóðum svo mikilvægt er að vanda vel til verka. Starfsmenn SSNV eru ætíð reiðubúnir til aðstoðar.