Undirritun viljayfirlýsingar um stækkun verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Ánægjulegt er að greina frá því að í vikunni skrifuðu Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar og Selma Barðdal Reynisdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra undir viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Áætlað er að framkvæmdir hefjist næsta vetur og gert er ráð fyrir að húsið verði reist í tveimur áföngum. Fyrirhugaðri stækkun er ætlað að mæta þörfum allra verknámsdeilda skólans auk þess að rúma fjölnotarými þar sem hægt verði að kenna greinar sem ekki eru kenndar reglulega við skólann eins og plastiðn, bifvélavirkjun og húsgagnasmíði.
Skagafjörður mun hafa umsjón með framkvæmdum og taka þátt í stofnkostnaði ásamt öðrum sveitarfélögum á Norðurlandi vestra, samtals 40% af heildarkostnaði og mun ríkissjóður greiða 60% á móti.
Ekki hefur tekist að anna eftirspurn í iðn- og starfsnámi FNV undanfarin ár vegna plássleysis, en mesta aukningin í skólanum hefur orðið á þessum námslínum síðan árið 2012. Það er því ljóst að þörfin er til staðar og nauðsynlegt að stækka húsið til að tryggja framþróun skólans og stuðla að skilvirku og faglegu skólastarfi fyrir bæði nemendur og starfsfólk. Í dag býr skólinn við óviðunandi aðstæður og þó nokkur hluti kennslu fer fram í gámum og bráðabirgðaúrræðum á göngum bóknámshúss skólans og verulega þröngt er í öðrum kennslurýmum. Sveitarstjórn Skagafjarðar sendi mennta- og barnamálaráðherra áskorun í byrjun árs um að fylgja eftir áætlunum forvera síns um að hefja framkvæmdir við stækkun verknámsskólans og því er ánægjulegt að búið sé að undirrita viljayfirlýsingu um að tryggja framgang verkefnisins.