Fara í efni

Umsóknir um styrki fyrir Sæluvikuna og tilnefningar til Samfélagsverðlauna

18.03.2026

Sveitarfélagið vill vekja athygli á að enn er opið fyrir umsóknir um styrki vegna viðburða á Sæluviku og senda inn tilnefningar til Samfélagsverðlauna Skagafjarðar 2026.

Hægt er að sækja um styrki fyrir fjölbreytta viðburði sem haldnir verða á Sæluviku. Umsóknarfrestur er til og með 22. mars og skulu umsóknir sendar á netfangið mannlif@skagafjordur.is. Með umsókn þarf meðal annars að fylgja nafn umsækjanda, lýsing á viðburði, dagsetning, kostnaðaráætlun og sú upphæð sem sótt er um. Öllum umsóknum verður svarað fyrir 27. mars.

Jafnframt er enn verið að taka á móti tilnefningum til Samfélagsverðlauna Skagafjarðar, sem veitt verða í ellefta sinn við setningu Sæluviku í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 12. apríl. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum sem hafa skarað fram úr í að efla samfélagið í Skagafirði.

Frestur til að senda inn tilnefningar er einnig til og með 22. mars.

Senda inn tilnefningu