Fara í efni

Umsóknir um leikskólapláss í Ársölum fyrir haustið 2020

17.04.2020

Við vekjum athygli á því að umsóknir um leikskólapláss í leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki þurfa að hafa borist fyrir 1. Maí n.k. til að eiga möguleika á að koma barni að í aðlögun haustið 2020.

Sótt er um í gegnum Íbúagátt Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Nánari upplýsingar veitir Sólveig Arna aðstoðarleikskólastjóri, í síma 867 5012, eða á solveigarna@skagafjordur.is.