Fara í efni

Umhverfisviðurkenningar sveitarfélagsins

27.09.2016
Frá afhendingu umhverfisverðlaunanna 2016 (mynd feykir.is)

Í síðustu viku voru veittar umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og voru þær fimm að þessu sinni. Soroptmistaklúbbur Skagafjarðar hefur séð um framkvæmdina þau tólf ár sem viðurkenningar hafa verið veittar.

 Fyrirkomulagið var með hefðbundnu sniði, sex hópar skiptu með sér svæðinu frá Fljótum inn allan Skagafjörð að Hofsvöllum og út að Hrauni á Skaga. Hóparnir fóru tvisvar um sitt svæði yfir sumarið og skiluðu inn tillögum.Brennihlíð 3 Sauðárkróki

Valnefnd klúbbsins hefur að mörgu að hyggja og endurskoðar reglulega viðmiðin varðandi matið. Sem dæmi um þau atriði sem horft er á og gefin einkunn fyrir er m.a. frágangur bygginga, geymsla tækja og áhalda, viðhald girðinga, almenn umgengni og heildarmynd húsa, lóða og sveitabýla.

 

Langamýri - fræðslusetur kirkjunnar

Að sögn Soroptmistasystra er umgengni stöðugt að batna í sveitarfélaginu og íbúar að gera umhverfið snyrtilegt og fallegt en í þessu eins og mörgu öðru má oft gott bæta. Ef við íbúar erum tilbúin að sinna okkar nánasta umhverfi, þó það sé utan lóðarmarka, við að tína rusl og uppræta illgresi þá er hægt að ná miklum árangri sem er til ánægu fyrir okkur sjálf og þá sem sækja okkur heim segja þær systur ennfremur og hvetja íbúa í Skagafirði til að leggja sitt af mörkum til að fegra fjörðinn okkar.

 

Á þeim tólf árum sem Soroptmistaklúbburinn hefur haft veg og vanda af tilnefningum til umhverfisverðlauna í Skagafirði hafa 73 staðir fengið viðurkenningu og í ár voru veittar fimm viðurkenningar í flokkunum, lóð í þéttbýli, lóð við fyrirtæki, sveitabýli án búskapar og lóð við opinbera stofnun.Smáragrund 13 Sauðárkróki

Brennihlíð 3 - Sigurbjörg Guðjónsdóttir og Jón Sigurðsson

Smáragrund 13 - Ásta Búadóttir og Trausti Jóel Helgason

Stóra-Seyla - Steinunn Fjóla Ólafsdóttir og Guðmundur Þór Guðmundsson

Sveitasetrið Hofstöðum - Guðný Vésteinsdóttir og Þórólfur Sigurjónsson

Langamýri - fræðslusetur kirkjunnar

 Stóra-Seyla

Sveitasetrið Hofstöðum