Fara í efni

Umhverfisviðurkenningar Skagafjarðar 2026

07.09.2026

Umhverfisviðurkenningar Skagafjarðar voru veittar þann 3. september sl. í Húsi Frítímans. Sveitarfélagið og Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar hafa í 22 ár unnið að því saman að velja og veita þessar viðurkenningar til bæði einstaklinga og fyrirtækja. Guðlaugur Skúlason formaður landbúnaðar- og innviðarnefndar fór með ræðu fyrir hönd sveitarfélagsins að þessu sinni.

Í ár voru veittar viðurkenningar í sjö flokkum. Þeir sem hlutu verðlaunin í ár voru eftirfarandi:

Í flokki sveitabýla með hefðbundinn búskap: Skúfsstaðir í Hjaltadal

Í flokki sveitabýla án hefðbundins búskapar: Eikarás í Seyluhreppi hinum forna.

Í flokki lóða í þéttbýli:

  • Lerkihlíð 7 á Sauðárkróki.

  • Furulundur 10 í Varmahlíð

Í flokki opinberra stofnana: Auðunarstofa

Í flokki fyrirtækja: Vörumiðlun ehf.

Í flokki einstaks framtaks: Skógræktin Smáhólar við Hofsós

Í flokki fallegustu og snyrtilegustu götunnar: Háahlíð á Sauðárkróki

Sveitarfélagið óskar öllum vinningshöfum innilega til hamingju með verðlaunin.