Fara í efni

Umhverfisdagar Skagafjarðar 2026 verða haldnir dagana 10.–31. maí

07.05.2026

Markmiðið með átakinu er að búa til snyrtilegt og fallegt umhverfi í sveitarfélaginu og eru því íbúar, fyrirtæki, býli og félagasamtök hvött til að taka höndum saman og hlúa að umhverfinu með virkri þátttöku. Í því felst að fólk tíni rusl, komi bílhræjum, vélhræjum og öðrum hræjum í endurvinnslu og snyrti til í og við lóðir sínar og lönd, og á nærliggjandi opnum svæðum.

Jafnframt vill sveitarfélagið koma á framfæri að einstaklingar geta losað sig við úrgang gjaldfrjálst á móttökustöðvum sveitarfélagsins.

Lóðarhafar eru hvött til þess að halda vexti trjáa og runna á lóðum innan lóðarmarka og stuðla þannig að auknu öryggi vegfarenda.

Vakin er athygli á því að allur almennur garðaúrgangur, s.s. jarðvegur, gras/hey og smærri greinar, á að fara í jarðvegstippinn rétt sunnan við leikskólann Ársali, austan við veginn Borgargerði á Sauðárkróki, móttökustöðina í Varmahlíð eða jarðvegstipp sunnan við Hofsós. Stærri greinar, tré og steypuafgangar, hellur, flísar o.þ.h. skal fara með upp í gryfjur við Gránumóa ofan Sauðárkróks.

Sveitarfélagið hvetur öll til að sameinast í átakinu og halda Skagafirði snyrtilegum.