Fara í efni

Umhverfisdagar Skagafjarðar 15. - 19. maí nk

17.04.2019
Umhverfisdagar Sveitarfélagsins Skagafjarðar verða haldnir dagana 15. - 19. maí nk en í ár eru 30 ár frá því að umhverfisdagar voru fyrst haldnir í firðinum. Íbúar eru hvattir til að hlúa að umhverfinu og er takmarkið að fá snyrtilegra og fegurra umhverfi. Mikilvægt er að íbúar, fyrirtæki og félagasamtök taki höndum saman, tíni rusl og snyrti til í og við lóðir sínar og á nærliggjandi opnum svæðum.
 
Óskað er eftir tillögum að viðburðum og verkefnum til að framkvæma á þessu 30 ára afmæli og er hægt er senda inn tillögur með því að smella hér eða senda tölvupóst á skagafjordur(hjá)skagafjordur.is.