Fara í efni

Umhverfisdagar 7. til 9. júní

05.06.2014

Sveitarfélagið Skagafjörður efnir til umhverfisdaga dagana 7. til 9. júní nk.

Takmarkið er fegurra umhverfi og því skiptir miklu máli að íbúar taki höndum saman og tíni rusl og snyrti í kringum lóðir sínar og á nærliggjandi opnum svæðum.

Hægt verður að nálgast ruslapoka á eftirtöldum stöðum frá föstudagsmorgni 6. júní:

Sauðárkrókur:   Flokka

Varmahlíð:         Kaupfélag Skagfirðinga

Hofsós:               Kaupfélag Skagfirðinga

Hólar:                 Ferðaþjónustan á Hólum (móttaka)

Steinsstaðir:      Garðyrkjustöðin Laugamýri

 

Mánudaginn 9. júní verður ruslapokum safnað saman og er mikilvægt að pokunum sé vel lokað og þeir lagðir við götukantstein að kvöldi sunnudags. Garðaúrgangur verður ekki hirtur, aðeins lokaðir pokar með rusli.

Með von um að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í að fegra umhverfi okkar.

Sjá nánar