Tvö verkefni miðstigs Grunnskólans austan Vatna áfram í Nýsköpunarkeppni
Gaman er að segja frá því að tvö verkefni frá nemendum af miðstiginu í Grunnskólanum austan Vatna komust áfram í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna í vikunni.
Alls voru 502 verkefni send inn hvaðanæva af landinu, en aðeins 25 verkefni komust áfram og þar á meðal voru ungmenni í grunnskólanum með tvær frábærar og vel útfærðar hugmyndir. Fyrra verkefnið ber heitið Léttingar kefli og er eftir þá Trausta Viðar Fjólmundsson og Jón Greip Þorgilsson. Hugmyndin þeirra byggist á mótorknúið kefli sem auðveldar upptöku girðinga. Seinna verkefnið ber nafnið SMR – Hjólahjálmur og er eftir þær Myrru Rós Hjörvarsdóttur og Sölku Marín Helgadóttur. Þær hönnuðu hjálm með Bluetooth og aðlögun fyrir hár.
Það er vert að nefna að nemendur voru að vinna með raunveruleg vandamál og fundu snjallar lausnir við þeim. Það má því svo sannarlega segja að hugmyndaflugið, sköpunargleðin og dugnaðurinn hafi skilað þessum frábæra árangri.
Sveitarfélagið óskar nemendum innilega til hamingju með árangurinn og það verður gaman að fylgjast með þeim í keppninni.