Fara í efni

Truflanir á afhendingu á hitaveituvatni á Sauðárkróki og Skarðshreppi

09.05.2025

Truflanir verða á afhendingu á hitaveituvatni frá kl. 16:00, mánudaginn 12. maí og fram eftir nóttu vegna endurbóta á virkjunarsvæði okkar í Borgarmýrum.

Skagafjarðarveitur vilja benda fólki á að muna eftir að hafa lokað fyrir krana á töppunarstöðum og huga að dælum fyrir upphitun á uppblöndunarkerfum gólfhita og bílaplönum.

Reikna má með að efri hluti Túnahverfis og Hlíðarhverfis verði heitavatnsvatnslaust á meðan þessum aðgerðum stendur, en reynt verður að hafa rennsli á neðri bænum.

Skagafjarðarveitur biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda notendum.