Tröllaleg sköpunargleði á bókasafninu
05.11.2026
Á mánudaginn sl. heimsótti Greta Clogh frá Handbendi á Hvammstanga bókasafnið á Sauðárkróki og bauð upp á skemmtilega tröllabrúðusmiðju fyrir börn í tilefni Skúnaskralls, barnamenningarhátíðar Norðurlands vestra.
Þetta er í annað sinn sem Greta heldur slíka smiðju á bókasafninu og óhætt er að segja að sköpunargleðin hafi verið engu minni en í fyrra skiptið. Þátttakendur fengu að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn og skapa sínar eigin tröllabrúður.
Hér eru nokkrar myndir af eigendum og nýju tröllunum þeirra.