Fara í efni

Traustur rekstur og jákvæð afkoma hjá Skagafirði árið 2025

27.04.2026

Ársreikningur sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2025 sýnir sterka rekstrarniðurstöðu, trausta efnahagsstöðu og ábyrga fjármálastjórn. Rekstur sveitarfélagsins skilaði jákvæðri niðurstöðu, eigið fé jókst milli ára og skuldastaða er vel innan þeirra marka sem lög gera ráð fyrir.

Ársreikningurinn var lagður fram til seinni umræðu þann 22. apríl sl. og nær yfir bæði A-hluta sveitarsjóðs og samantekinn A- og B-hluta. Í A-hluta eru aðalsjóður, eignasjóður og þjónustustöð, en í B-hluta eru meðal annars veitustofnanir, hafnarsjóður, félagslegar íbúðir og félög í eigu sveitarfélagsins, auk hlutdeildarfélaga samkvæmt hlutfallslegri ábyrgð.

Reksturinn skilar umtalsverðum afgangi

Ef stiklað er á helstu tölum þá námu rekstrartekjur samstæðu Skagafjarðar 10.261 millj. króna á árinu 2025, þar af voru 8.719 millj. króna í A-hluta. Rekstrargjöld, án afskrifta og fjármagnsliða, námu alls 8.856 millj. króna, þar af 7.954 millj. króna í A-hluta.

Rekstrarafgangur samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 1.405 millj. króna, þar af 765 millj. króna í A-hluta. Þegar afskriftir og fjármagnsliðir hafa verið teknir með í reikninginn er rekstrarniðurstaða A- og B-hluta jákvæð um 588 millj. króna, og 222 millj. króna í A-hluta sveitarsjóðs.

Eignastaða styrkist og eigið fé eykst

Heildareignir sveitarfélagsins námu 16.858 millj. króna í árslok 2025, þar af 12.913 millj. króna í A-hluta. Samtals voru skuldir og skuldbindingar 10.743 millj. króna, þar af 9.508 millj. króna hjá A-hluta.

Eigið fé samstæðunnar nam 6.116 millj. króna í árslok og jókst eiginfjárhlutfall í 36,3%, samanborið við 33,3% árið 2024. Eigið fé A-hluta var 3.405 millj. króna, með eiginfjárhlutfall upp á 26,4%. Lífeyrisskuldbindingar námu 2.119 millj. króna í árslok.

Miklar fjárfestingar og góð sjóðstaða

Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nam 1.408 millj. króna á árinu, þar af 835 millj. króna í A-hluta. Handbært fé frá rekstri var 1.245 millj. króna. Fjárfestingarhreyfingar námu alls 1.097 millj. króna, þar af 1.224 millj. króna í varanlegum rekstrarfjármunum, sem endurspeglar áframhaldandi uppbyggingu og þróun innviða í Skagafirði.

Afborganir langtímalána námu 621 millj. króna og tekin voru ný langtímalán að fjárhæð 550 millj. króna. Handbært fé sveitarfélagsins var 387 millj. króna í árslok.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum mega heildarskuldir sveitarfélaga ekki fara yfir 150% af reglulegum tekjum. Skuldahlutfall Skagafjarðar í ársreikningi 2025 er 105%, áður en heimilaðir frádráttarliðir eru teknir með. Að frádregnum þeim liðum er skuldaviðmið sveitarfélagsins 81%, sem er vel innan lagalegra marka og undirstrikar ábyrga fjármálastjórn.

Ársreikningurinn sýnir sterklega að rekstur sveitarfélagsins er stöðugur og ábyrgur, með svigrúm til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar. Sterk rekstrarafkoma, aukið eigið fé og skuldastaða vel innan marka laga skapa traustan grunn fyrir framtíðina og gerir sveitarfélaginu kleift að sinna áfram mikilvægri þjónustu og verkefnum fyrir íbúa Skagafjarðar.

Sveitarstjóri þakkar starfsfólki og öllum sem komu að vinnu við ársreikninginn fyrir mikinn metnað, fagmennsku og gott samstarf sem liggur að baki þessum góða árangri.