Fara í efni

Tökum höndum saman og hreinsum upp eftir okkur flugelda

03.01.2024
Mynd af netinu

Um leið og sveitarfélagið óskar íbúum Skagafjarðar gleðilegs nýs árs, viljum við minna alla á að hreinsa upp rusl eftir flugelda og skotkökur sem skotið var upp um áramótin. Mjög margir hafa nú þegar hreinsað upp eftir sig á skotsvæðum sínum og er það til fyrirmyndar. Eitthvað er þó eftir og hvetjum við allar flugeldaskyttur til þess að hreinsa það hið fyrsta. Nú stendur yfir snjómokstur og myndast mikill sóðaskapur ef ruðningstæki taka þetta með sér.

Notaðir flugeldar fara í urðun en tekið er á móti ónotuðum flugeldum á móttökustöðvum.