Fara í efni

Tímabundnar lokanir í Sundlaug Sauðárkróks 26.-28. mars

23.03.2018
Sundlaug Sauðárkróks

Nú standa yfir framkvæmdir við sundlaugina á Sauðárkóki og óhjákvæmilegt annað en að loka dagsparta í vikunni fyrir páska. Frá mánudegi til miðvikudags í næstu viku dagana 26.-28. mars verður lokað frá kl 9 á morgnana til kl 17 síðdegis.

Sundlaugin opnar á venjulegum tíma kl 6:50 og verður opin að venju til kl 20:30 þegar hún opnar aftur síðdegis.