Fara í efni

Tímabundin niðurfelling gatnagerðargjalda

29.01.2015

Samþykkt var á fundi sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær, 28. janúar 2015, að framlengja frá og með 1. júlí 2014 samþykkt um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlíð. Var það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga nr. 153/2006. Ákvæðið tekur gildi eftir samþykkt þess í sveitarstjórn og varir til 31. desember 2015.  Ákvæðið er ekki afturvirkt og miðað er við að framkvæmdir hefjist innan þessara tímamarka."

Nánari upplýsingar um lausar lóðir er að finna hér.