Fara í efni

Tillaga að uppbyggingu skólamannvirkja fyrir leik-, grunn- og tónlistarskóla í Varmahlíð

28.01.2022
Tillaga að breytingu - aðkoma að leikskóla

Í lok árs 2019 var sett fram sameiginleg viljayfirlýsing sveitarfélaganna í Skagafirði þar sem samþykkt var að stefna að uppbyggingu skólamannvirkja fyrir leik-, grunn- og tónlistarskóla á einum stað í núverandi húsnæði Varmahlíðarskóla. Skipuð var sérstök verkefnisstjórn um framkvæmdina. Í henni sitja skólastjóri Leikskólans Birkilundar, skólastjóri Varmahlíðarskóla, skólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðar, fræðslustjóri, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs og framkvæmdastjórar sveitarfélaganna tveggja.

Markmiðið er að þær breytingar sem gerðar verða á húsnæðinu og umhverfi þess uppfylli þarfir og kröfur sem gerðar eru í dag til skólahalds leik-, grunn- og tónlistarskóla. Við undirbúning verkefnisins var stuðst við svokallað „Design Down Process“ sem á íslensku mætti kalla undirbúningsferli hönnunar, frá hinu almenna til hins sérstæða og voru VA Arkitektar fengnir til að stýra þessu samráðsferli.

Var ákveðið að boða til samráðsfunda með íbúum Skagafjarðar og Akrahrepps til að ná fram sjónarmiðum sem flestra við gerð þarfagreiningar skólanna og umhverfi þeirra. Markmið þessarar undirbúningsvinnu var að safna og greina þarfir og óskir nemenda, starfsmanna, foreldra og annarra íbúa, auk þeirra sem sækja þjónustu á svæðinu. Einnig var lögð áhersla á að skoða nánar hvernig má nýta húsnæðið fyrir samfélagið í heild sinni. Í því samhengi hefur verið nefnt námskeiðahald og félagsstarf þar sem aðstaða skólans kemur að notum eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og opna þannig húsnæði skólanna fyrir nærsamfélagið og leitast við að skapa sameiginlegan vettvang fólks á öllum aldri til að sinna áhugamálum og félagsstarfi.

Við sjálfa hönnunina var svo eftir því sem unnt var komið til móts við þau sjónarmið sem fram komu í samráðsferlinu. Markmiðið var að skapa hagnýtt námsumhverfi sem er í senn örvandi fyrir nemendur og starfsfólk en hefur líka möguleika á því að verða grunnur að „hjarta“ samfélagsins í sveitarfélaginu.

Eftirfarandi eru tillögur VA Arkitekta að breytingum á Varmahlíðaskóla og samþættingu skólanna þriggja á sama stað:

Tillaga að breytingu og nýbyggingu leikskóla

Leikskóli

Hafir þú áhuga á að koma ábendingum á framfæri við verkefnisstjórn og hönnuði má gera það með tölvupósti á netfangið: johann@vaarkitektar.is. Óskað er eftir að ábendingar verði sendar fyrir mánudaginn 14. febrúar 2022.