Tillaga að deiliskipulagi: Langaborg í Hegranesi
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 46. fundi sínum þann 25. febrúar 2026 að auglýsa deiliskipulastillögu fyrir Lönguborg í Hegranesi í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi fyrir uppbyggingu gistingar að Lönguborg í Hegranesi. Meginmarkmið skipulagsins er að skilgreina byggingarreiti, ásamt því að skapa grundvöll fyrir landeigendur til að nýta landeignina eins og kostur er með því að auka gistimöguleika í sveitarfélaginu.
Opið er fyrir athugasemdir á tillögunni frá 4. mars 2026, til og með 17. apríl 2026. Hægt er að skoða tillöguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 1624/2025. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is
Hverjum þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar og athugasemdir sem snúa að málefnum deiliskipulagsins í gegnum vef skipulagsgáttar www.skipulagsgatt.is (mál nr. 1624/2025). Einnig er hægt að skila inn skriflegum umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar