Fara í efni

Tillaga að deiliskipulagi, Borgarmýri 1 og 1A á Sauðárkróki

15.01.2025

Borgarmýri 1 og Borgarmýri 1A, Sauðárkróki - Mál nr. 39/2025 í Skipulagsgáttinni

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 33. fundi sínum þann 18. desember 2024 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Borgarmýri 1 og 1A, Sauðárkróki í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillagan er sett fram með greinargerð og skipulagsuppdrætti nr. DS01, í verki 56293303, dags. 22.11.2024, unnin hjá Stoð verkfræðistofu ehf.

Skipulagsuppdrátturinn sýnir lóðamörk, aðkomu og bílastæði og byggingarreiti innan skipulagssvæðsins, ásamt helstu byggingarskilmálum. Í gildi er deiliskipulag Borgarmýrar 1, samþykkt 03.07.2024. Með deiliskipulagi þessu, fyrir Borgarmýri 1 og 1A, fellur fyrra deiliskipulag úr gildi.


Deiliskipulagstillagan er auglýst frá 15. janúar 2025 til og með 28. febrúar 2025. Hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 39/2025. Tillagan mun jafnframt vera til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá kl. 10-12 og kl. 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin hér á heimasíðu Skagafjarðar.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is í síðasta lagi 28. febrúar 2025. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.

Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

 

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar