Fara í efni

Tilkynningar um breytingar á lögheimili

19.11.2014

Vakin er athygli á að tilkynningar um breytingar á lögheimili þurfa að berast Þjóðskrá Íslands eigi síðar en fimmtudaginn 11. desember svo tryggt sé að einstaklingar séu rétt skráðir í íbúaskrá miðað við 1. desember þessa árs.   

 Sérstök athygli er vakin á því að einstaklingar geta tilkynnt flutning á vef Þjóðskrár Íslands, skra.is. Ef lögheimilisflutningur er tilkynntur rafrænt þá fer tilkynningin sjálfkrafa í beiðnakerfið og er skráður eigi síðar en næsta virka dag. Hátt í 50% lögheimilistilkynninga berast nú rafrænt til skráningar og hefur stofnunin fjarlægt eyðublöð af vefnum til þess að ná enn betri árangri í rafrænum skilum. 

Skráning á skra.is