Fara í efni

Tilkynning ǀ Víðigrund á Sauðárkróki lokar sunnanmegin

10.07.2026

Vakin er athygli á því að Víðigrund á Sauðárkróki lokar nú sunnanmegin vegna áframhaldandi gatnaframkvæmda. Gatan hefur einungis verið lokuð norðanmegin til að tryggja umferð að leikskólanum. Nú eru verktakar að færa sig á hinn endann og hafa lokað götunni við gatnamót Grundastígs og Víðigrundar og einnig frá Hegrabraut inn á Víðigrund.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki í október ef veður og aðstæður leyfa.

Íbúar eru áfram beðnir um að leggja bílum utan vinnusvæðis eftir því sem unnt er. Á meðfylgjandi yfirlitskorti er hægt að sjá tímabundin bílastæði þar sem hægt verður að leggja meðan á framkvæmdinni stendur.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og skilnings á meðan á framkvæmdum stendur.